Sannleikskorn

Mennirnir eru hálfvitar! Þessir fáránlegu apaandskotar sem ráða yfir þessum heimi eiga ekki að vera til! Af hverju? Af því að þessi api mengar, hann lýgur, hann drepur, hann býr til hluti, sem menga! Hann kann ekki að velja, gott dæmi, mjög margir pólitíkusar, hann kann að tala, eitthvað sem hann hafði ekkert að gera með, og hann er algjör hálfviti sama hvað þessi helvítis próf segja. Bara af því hann gerir það sem hann á að gera.

Annars er mánudagur í dag, og ég er ekkert að fíla það. Klukkan í símanum var rangt stillt, út af ´því að síminn frosnaði í gær og ég varð að taka batteríið úr, og stilla klukkuna upp á nýtt og ég gerði það vitlaust, þannig að ég vaknaði við pabba minn tíu mínútur áður en skólinn byrjaði, fékk mér epli, komst tímanlega en ógeðslega svangur. Svo gleymdi ég sjampóinu upp í sundlaug og þurfti að ná í það. Svo komst ég að því að ég hafði lært vitlausa tónstiga fyrir tónskólapróf og ég á lítið sem ekkert blek þannig að ég get eiginlega ekki teiknað mikið, nema með blýanti og ég var svangur í dönsku.

Annars er þetta bara búið að vera fínn dagur, og svoleiðis. Bara varð að nöldra í einhverjum. Hérna er fín vefmyndasaga sem mér finnst alveg frábær, og ef ´þér finnst það ekki, þá deyrðu á morgun. Hún er
www.frozenreality.co.uk/comic/bunny
Höfundurinn kallar sig Lem.

Þið ættuð líka að lesa Nightmares and Dreamscapes eftir Stephen King. Góð bók. Margar sögur. Annars er litli bróðir minn að dafna og grenja, en svoleiðis gerist bara. Það fylgir litlum börnum og ég er hálfpartinn glaður fyrir að vera á neðri hæðinni, í risastóru herbergi.

Þannig er það nú bara.

Djeinus.

P.S. Aldrei bloggað svona mikið. Vá!

Athugasemdir

1
Óttar skrifar:
uuuuu já
06. mars 2007 klukkan 15:41

Skrifa athugasemd

Aðalvalmynd

Auglýsing

Leit

Leikur dagsins

Innskráningar kubbur

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Könnun

Ætti að lögleiða klámmyndir í íslensk kvikmyndahús